Jæja, lokadagur í áttaki og ég læt ekki segjast. Var að stelast í smartís í skúffuna núna rétt í þessu og er á leiðinni út í mat að kaupa mér eitthvað gott og fitandi Samt held ég að þetta hafi nú alveg skilað einhverju hjá okkur öllum, amk allar með lægri tölu en í byrjun, þó það sé mismikið sem munar. Betra niður en upp !
Á morgun koma svo lokaniðurstöður - reyndar þarf M&M að skila í dag þar sem hún er að stinga af til útlanda. En á morgun kemur í ljós hvort M&M eða Kokosbolla vinni, held að Tobleron og Lindubuff eigi því miður ekki séns að þessu sinni. Við höldum svo bara aftur svona eftir áramót - fínt að hafa eitthvað til að hugsa um.
Bloggar | 29.11.2007 | 11:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jæja, var ég ekki eitthvað búin að heyra að því að við ætluðum að setja inn matardagbók hérna á bloggið ? En allaveganna, mín er ekki spennandi.
Svona til að setja inn eitthvað þá var kvöldmaturinn í gær samloka og örbylgjufranskar með helling af gosi. Svo dálítið af appelsínu-suðursúkkulaði í eftirmat.
Í dag er þetta svona það sem af er:
Morgunmatur : loftið (sem sagt ekkert nema tyggjó)
Hádegismatur: Stór subway með kjúklingabringu, beikon, osti, aukaosti, sósu og ENGU grænmeti. Skolað niður með slatta af coke-light. Nammi í eftirmat (nokkrir bananabitar, skamm ég veit)
Sem sagt - ekki mikil hollusta, það virðist ætla að vera erfitt að spýta í lófann og taka sig á. En samt er ég töluvert stilltari en áður, amk hvað kvöldát varðar Sjáum hvað viktin segir í fyrramálið, er með klúbb heima í kvöld með tilheyrandi gúmmulaði.........
Bloggar | 8.11.2007 | 14:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)



Bloggar | 6.11.2007 | 22:39 (breytt kl. 22:43) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hæ pæjur
Varð bara að prófa að setja inn færslu ;Þ
Bloggar | 2.11.2007 | 10:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)

Bloggar | 2.11.2007 | 10:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þessi vika byrjar þokkalega, ég er svo busy að ég hef ekki tíma til að borða nammi á kvöldin (nema smá með Næturvaktinni á sunnudag), ég borða samt smá nammi alla daga, finn mér alltaf einhvern tíma til þess
En ég hef svo sem ekkert stigið á viktina, það kemur í ljós næsta föstudag hvort þetta sé að skila einhverju eða ekki, ég er að borða frekar óreglulega og mikið brauð, en það er svo sem ekkert nýtt !
Ég labba upp á 5 hæð á hverjum degi, ætla að halda mig við það, svo er badminton þó það sé bara 1. sinni í vku eins og er, þá verður það 2svar frá og með 1. nóvember og maður þarf að finna sér einhverja aðra góða hreyfingu með þegar það fer að róast (ef það gerist einhverntímann)
Tobleron og M&M - ætli þið ekkert að láta í ykkur heyra í þessu átaki !!!
Bloggar | 30.10.2007 | 09:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
jæja þá er viktin fyrri þessa viku búin ég er búin að setja þær inn. Hægt er að smella á hnappinn "Lífstíll" til að sjá nánar.
Vonandi verður næsta vika betri :)
Bloggar | 26.10.2007 | 08:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jæja, þetta gengur ágætlega hjá mér þessa stundina, er farin að draga verulega úr nammi en samt borða ég alltaf eitthvað á hverjum degi. Byrjum á að minnka og svo fer maður að sleppa dögum og vonandi nær maður að enda með 1 nammidag í viku
Einnig hef ég minnkað franskar, samt er ég lítið annað að spá í mataræðið, en maður verður að byrja rólega svo maður nái kannski frekar að gera þetta varanlegt. Ég hef nú ekki hreyft mig nóg, fór bara í badminton á mánudag en komst ekki á miðvikudag né í dag, föstudag, en í staðinn er ég á fullu við að pakka og búin að liggja í kvefi og hósta alla vikunna og það tekur sinn toll.
Allaveganna - so far so good
Bloggar | 26.10.2007 | 08:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vá þetta hefur verið erfið vika hjá mér, allt of mikil óhollusta
Nú ætla ég að reyna koma mér aftur í réttan gírinn. Þetta gengur ekki, þetta var farið að ganga svo rosalega vel. Maður er alveg ótrúlega fljótur að detta til baka!!
Í dag hef ég borðað og kem til með að borða:
morgunmatur: 2 hrökkbrauðsn. með klípu, kaffi m/mjólk, vatn
Millibiti: kaffi m/mjólk (hefði átt að vera ávöxtur hér)
hádegismatur: 6" Subway BMT m/létt mayones og hungssinnepi, vatn
kaffi: vatn, heilsu vöffla (heitir það það ekki) með organic sýrópi á milli
Kvöldmatur: soðin ýsa, kartöflur m/klípu
Kvöldkaffi: epli
Bloggar | 25.10.2007 | 16:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Úff.. þetta er búin að vera svakalega erfið helgi hjá mér Dóttir mín átti afmæli á föstudaginn og þá fór öll fjölskyldan á Pizza hut
, á laugardeginum var brúðkaup og tilheyrandi með því.. matur og vín
og á sunnudeginum var svo afmælisveisla fyrir skvísuna
og í gær var annar í afmæli og í dag þriðji í afmæli
En í dag hendi ég öllum afgöngum sem étast ekki í dag. Gengur ekki að hafa þetta inn í ískáp. Þannig að vigtin verður fín hjá mér ef hún fer ekki upp þessa vikuna
Bloggar | 23.10.2007 | 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
Maí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar